Þýskaland 1918-1933
Eftirmálar fyrri heimsstyrjaldarinnar voru aðallega tengdir efnhag um alla Evrópu. Í Þýskalandi kom upp mikil verðbólga og árið 1929 dundi svo yfir kreppan mikla ofan á aðra erfiðleika. Atvinnuleysi varð mjög mikið og hlutabréf hrundu í verði. Af þessum sökum varð mikið um fátækt og hungursneyð í Þýskalandi og annars staðar í Evrópu. Þjóðernishyggja varð mjög sterk á þessum tíma og þá sérstaklega í Þýskalandi og á Ítalíu.